Fjölmenning auðgar
Fjölmenning auðgar – Fagleg samskipti í samfélagi margbreytileikans
Við erum rík af fjölmenningu á Suðurnesjum og í því geta falist áskoranir fyrir samfélög og fjölmenningarlega vinnustaði. Það er mikilvægt að stjórnendur og starfsfólk sé meðvitað bæði um þær áskoranir sem geta falist í ólíkri sýn og ólíkum venjum samstarfsfólks og um eigin viðhorf gagnvart fjölbreytileika.
Markmið námskeiðsins er að:
- Þátttakendur öðlist betri skilning á fjölmenningu
- Þátttakendur verði meðvitaðir um hvernig samskipti þeirra og viðhorf séu gagnvart fólk af ólíkum uppruna og þá mögulega hvort það geti gert betur
- efla menningarnæmi og -færni þátttakenda
Námskeiðið byggir á umræðum og gagnvirkum samskiptum á milli fyrirlesara og þátttakenda. Unnið er í hópum að verkefnum er snýr að fjölmenningu, samskiptum og fordómum.
- Á hverju námskeiði eru að hámarki 30 einstaklingar
- Hvert námskeið er eitt skipti og það er mögulegt að velja um tveggja eða þriggja klukkustunda námskeið
- Námskeiðið getur farið fram á íslensku, ensku og pólsku
Frekari upplýsingar um fjölmenning auðgar veitir:
Linda Björk – Beinn sími: 412-5951 – Netfang: linda@mss.is
Hólmfríður - Beinn sími: 412-5962 - Netfang: holmfridur@mss.is