Íslenska - Tal

Íslenskunámskeið 

MSS býður upp á íslenskunámskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna, því er um einstaklingsmiðað nám að ræða. Markmiðið er að bjóða upp á íslenskunámskeið út frá getu hvers og eins. 

Á íslenskunámskeiðunum verður áhersla lögð á skilning, talað mál, ritun, hlustun, lestur og málfræði.

 

MSS sendir upplýsingar um námskeið í tölvupósti á nemendur, nokkrum dögum áður en námskeið hefst.

Námskeið fer af stað þegar lágmarksþátttaka næst. MSS áskilur sér þann rétt að færa til og breyta dagsetningum og tímasetningum ef þörf er á.

Nauðsynlegt er að vera með að lágmarki 80% mætingu til að fá útskriftarskírteini í lok námskeiðs.

 

Ef námskeið er greitt af fyrirtæki/stofnun eða viðkomandi á rétt á styrk vegna námskeiðisgjalda þarf að láta MSS vita við skráningu.

 

Ef þú finnur ekki námskeiðið sem hentar þér, endilega hafðu þá samband við okkur. 

Kristín, Sveindís og Diana

icelandic@mss.is / 421 7500 



Hæfniviðmið í íslensku útfrá evrópska tungumálarammanum

Speaking group A.2

Dags: 16. september - 30. október
Tími: Mondays, Wednesdays and Fridays from 16:00-18:00 / Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar frá 16:00-18:00
Staðsetning: MSS, Krossmói 4a
Tengiliður: icelandic@mss.is
Lýsing: Icelandic lessons for people of foreign origin, mixed group. The focus is on spoken language for those who have finished Icelandic 1 an 2. Íslenskukennsla fyrir fólk af erlendum uppruna, blandaður hópur. Talnámskeið þar sem áherslan er á talað mál í daglegu lífi. Nemendur þurfa að hafa lokið íslensku 1 og 2 til að fara í talhópinn. *The terms of this course are subject to future change by the organizers. *Birt með fyrirvara um breytingar.
Verð: 55.700

Sækja um

Talað mál B.1

Dags: 1. október - 5. desember
Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar frá kl. 17:00-19:00
Staðsetning: Mss, Krossmói 4a
Tengiliður: icelandic@mss.is
Lýsing: Íslenskukennsla fyrir fólk af erlendum uppruna, blandaður hópur. Talhópur fyrir einstaklinga sem hafa lokið íslensku 1-4 og hafa náð að tileinka sér íslenskt mál í daglegu lífi og vilja styrkja sig enn betur. *Birt með fyrirvara um breytingar.
Verð: 55.700

Sækja um
Íslenska - Tal