Íslenska og atvinnulífið
Fyrir hverja
Námskeiðið er hugsað fyrir byrjendur í íslenskunámi með áherslu á orðaforða tengdan íslensku atvinnulífi. Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að vinna eftir verkferlum og fylgja reglum, starfsreglum og siðareglum vinnustaðar. Á námskeiðinu verður einnig lögð áhersla á sjálfseflingu og samskipti í daglegu lífi og starfi og hagnýtar upplýsingar tengdar atvinnulífi.
Markmið eru að námsmaður:
- öðlist grunnfærni í íslensku
- læri að lesa launaseðil
- kynnist starfsemi stéttarfélaga
- þekki réttindi og skyldur á vinnumarkaði
- fái kynningu á almannatryggingum og lífeyrissjóðum
- öðlist færni í jákvæðum og árangursríkum samskiptum
Námskeið í boði á eftirfarandi tungumálum - vinsamlegast skráið þátttakendur í viðeigandi hópa
Námsmat
80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Kennt er samkvæmt námsleið Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Fyrirkomulag:
Kennt er í staðnámi og/eða fjarnámi.
Staðnámið er kennt á virkum dögum frá klukkan 09:00 – 12:00 eða 12:30 til 15:30 í húsnæði MSS.
Fjarnámið er kennt á kvöldin og/eða um helgar.
Verð:
25.000 kr.
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og/eða Vinnumálastofnun Suðurnesja
Verð og upplýsingar á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
Tími:
Í boði frá september til desember 2024
Nánari upplýsingar:
Diana, Kristín og Hófý í síma 421-7500 eða í tölvupósti courses@mss.is
Verð: 25.000
Tímabil: 1. október - 20. desember