Jákvæð sálfræði í lífi og starfi - Símenntun Sjúkraliða
Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju. Hér er velt upp hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi.
Á námskeiðinu verður farið í hvað rannsóknir á vellíðan einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað verður um leiðir til að auka vellíðan og mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi.
Fyrir námskeiðið taka þátttakendur VIA styrkleikaprófið.
Kennslufyrirkomulag:
Námskeiðið fer fram í húsnæði MSS, þann 23. apríl klukkan 17:00 - 22:00
100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Leiðbeinandi er:
Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði frá Buckinghamshire New University, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Lengd: 6 punktar
Nánari upplýsingar veitir:
Áslaug Bára í síma 421-7500 eða á netfangið aslaug@mss.is
Verð: 21.000
